SAFT og netöryggi

Sex krakkar úr ungmennaráði SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) eru nýkomin af ráðstefnu um netöryggi sem haldin var í Stokkhólmi. Eitt þeirra, Diljá Helgadóttir mætti í Morgunútvarpið, sem og Hrefna Sigurjónsdóttir frá Heimili og Skóla, en hún fylgdi krökkunum til Svíþjóðar.

SAFT er verkefni á vegum samtakanna Heimili og Skóli og snýst um netöryggi. Því er skipt upp í þrjá hluta; forvarnir, ábendingar og aðstoð. Ráðstefnan í Svíþjóð, sem haldin var um miðjan júní kom til eftir fund hjá IGF (Internet Governance Forum) árið 2010, þar sem rætt var um að stofna ráð norrænna ungmenna til að álykta um netið og miðla þekkingu og upplýsingum til fólks á sama aldri á Norðurlöndunum. Fyrsti fundur þessa ráðs var svo haldinn í sumar, í tengslum við EURODIG, stóra ráðstefnu um netið, og þangað fór íslenski hópurinn.
Diljá segir það hafa verið gagnlegt að hitta önnur ungmenni og ræða málefni sem allir þekkja en nálgast frá mismunandi sjónarhornum. Þau völdu sér þrjú megin þemu til að ræða um; menntun, aðgengi og öryggi á netinu, til dæmis öryggi persónuupplýsinga í tölvupósti og á Facebook.
Eftir að krakkarnir höfðu setið saman í tvo daga og rætt þessi mál, héldu þau á Eurodig ráðstefnuna, þar sem þau sátu í panel frammi fyrir ráðstefnugestum og ræddu þessi mál, eftir að sænska drottningin hafði sett ráðstefnuna.
En skilar svona ráðstefna einhverju?. Svo sannarlega, segir Diljá. Skoðanir ungmenna hvað varðar netið heyrist ekki nógu oft og því sé mikilvægt að vera til staðar með mótaðar ályktanir og rökstuddar skoðanir.