Norrænt ungmennaráð í Stokkhólmi

SAFTstækka

SAFT

Sex ungmenni úr ungmennaráði SAFT, Samfélag, fjölskylda og tækni – netöryggisverkefni sem stýrt er af Heimili og skóla, halda nú til Stokkhólms þar haldið verður norrænt ungmennaráð um internetið.

SAFT tekur þátt í norrænu samstarfsverkefni sem styrkt er af Norrænu ráðherranefndinni og gengur verkefnið undir nafninu NYIGF, Nordic Youth Internet Governance Forum. Í tilkynningu frá SAFT segir að ætlunin er að leiða saman um 30 ungmenni af Norðurlöndunum til að ræða stefnumótun internetsins og framtíð þess.

Fyrsti fundur ungmennanna verður í Stokkhólmi 12.-14. júní næstkomandi en þar munu ungmenni á aldrinum 14 til 17 ára frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Íslandi ráða ráðum sínum og mynda norrænt ungmennaráð. Fundurinn er haldinn í tengslum við EuroDIG ráðstefnuna sem verður í Stokkhólmi á svipuðum tíma.

Flest ungmennin halda síðan heim á leið 14. júní nema þau íslensku og sænsku sem munu taka þátt í málstofum á EuroDIG ráðstefnunni og í einni þeirra munu þau hitta Silvíu Svíadrottningu sem heldur þar erindi.

Með í för verða tveir fararstjórar: Hrefna Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri Heimilis og skóla og Jenný Ingudóttir, sérfræðingur hjá Embætti landlæknis.