Tækni & vísindi | mbl | 28.5.2012 | 20:20
Óþekktur aðili sem kallar sig Flame hefur gerst tölvuárás á nokkur lönd í Miðausturlöndum, m.a. Íran og Ísrael. Flame hefur tekist að safna miklu magni upplýsinga með þessum árásum.
Þetta hefur BBC eftir rússneska tölvuöryggisfyrirtækinu Kaspersly. Í fréttinni segir að Flame hafi verið að störfum síðan í ágúst 2010. Tölvuárásirnar séu það umfangsmiklar að flest bendi til að eitthvert ríki standi að henni. Ekki hefur þó tekist að sanna hver standi að baki þessum aðgerðum.
Tölvuárásirnar virðast ekki beinast að því að valda skemmdum á hugbúnaði heldur virðist Flame vera að stela upplýsingum. Að mati Kaspersky hefur Fleme tekist að safna miklu magni viðkvæmra upplýsinga.
Meira en 600 aðilar hafa orðið fyrir barðinu á Flame, bæði einstaklingar, fyrirtæki, háskólar og opinberar stofnanir.






Facebook
YouTube

