Facebook-hrekkur að lögreglumáli: Má ég versla í Bónus á nærbuxunum? – Frí gisting í fangageymslu

Getty Images

Fyrirspurn sem sett var inn í gríni rataði inn á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Lögreglan tók létt á málunum og bauð upp á ókeypis gistingu í klefa við Hverfisgötuna.Ungur maður sendi fyrirspurn á vegg lögreglunnar og spurði þar hvort neita mætti honum um þjónustu ef hann mætti á nærbuxum einum fata í Bónus. Lögreglan svaraði fyrirspurninni en skömmu síðar greindi notandinn frá því að hann hefði sannarlega ekki skrifað fyrirspurnina heldur hefði verið um Facebook-hrekk.

Þessi sprellikarl/-kona sem gerði þetta á inni fría gistingu í klefa á lögreglustöðinni að Hverfisgötu 113.

Djók,

skrifaði lögreglan á eigin síðu.

Burtséð frá gríninu segir framkvæmdastjóri Bónusverslana erfitt að skilgreina hvað sé innan siðferðismarkanna.

Hvað eru nærbuxur og hvað er sundskýla? Myndi maður ekki afgreiða þann sem kæmi í verslun í sundskýlu? Annars ættu þeir sem haldnir eru sýniþörf að fá útrás fyrir hana annars staðar en hjá okkur,

sagði Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónusverslana í samtali við Pressuna.